Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 20. desember 1999, kl. 17:53:06 (3567)

1999-12-20 17:53:06# 125. lþ. 50.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 125. lþ.

[17:53]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Þetta er mergurinn málsins. Það eru fjárfestar sem eiga að ráða því hvort við fórnum Eyjabökkum. Það er ekki Alþingi Íslendinga sem á að taka þar ákvörðun og leggja mat á minni hagsmuni og meiri hagsmuni í ljósi staðreynda sem liggja fyrir, það eru fjárfestar. Verið er að lýsa því yfir við Alþingi Íslendinga að það skipti engu máli hvað sagt er um þetta mál, ákvarðanir um þetta eigi að taka í kauphöllum heimsins.