Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Ég ítreka ánægju mína að málin skuli hafa verið rædd sem eðlilegt getur talist að yrði gert í iðnn. Hins vegar verður að sjálfsögðu að gera grein fyrir niðurstöðu málsins í umræðum á Alþingi og Alþingi getur ekki búið við það að embættismenn séu bornir röngum og ómaklegum sökum. Ég harma það að sjálfsögðu að ekki skuli hafa náðst samstaða í nefndinni á svipuðum nótum og við fengum í yfirlýsingu hæstv. umhvrh. fyrr í dag sem lýsti trausti á þann embættismann sem um ræðir.