Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:10:54 (3681)

1999-12-21 18:10:54# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, EMS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:10]

Einar Már Sigurðarson:

Herra forseti. Nú er greitt atkvæði um það mál sem er líklega hvað stærst ef litið er til atvinnu- og byggðamála í landinu. Aðstæður okkar eru því miður þannig að hallað hefur mjög á hinar dreifðu byggðir. Hér verður gerð tilraun til þess að snúa þeirri þróun við.

Herra forseti. Það bendir flest til þess að þetta muni gefa okkur ný tækifæri á Austurlandi og landinu öllu til að vinna gegn hinni uggvænlegu þróun. Herra forseti, ég segi já.