Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:11:41 (3682)

1999-12-21 18:11:41# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, iðnrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:11]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Ég trúi því að við séum hér að stíga gæfuspor. Ég er sannfærður um að með samþykkt þessarar tillögu færumst við nær því að geta tekið þá ákvörðun að byggja upp orkufrekan iðnað á Austurlandi. Samþykkt tillögunnar styrkir samningsstöðu okkar og um leið mun okkur takast að halda áfram uppbyggingu orkufreks iðnaðar sem leggur grunn að varanlegum og betri lífskjörum fyrir þjóðina alla. Ég segi já.