Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:15:55 (3687)

1999-12-21 18:15:55# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, HjálmJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:15]

Hjálmar Jónsson:

Herra forseti. Hér fær lýðræðið að hafa sinn gang byggðum landsins í vil. Þetta er siðleg ákvörðun og gleðileg, styrkir byggðir landsins og styrkir þjóðina. (ÖJ: Kristilega?) Já. Enginn sökkvir landi með neinni gleði en það er fórnarkostnaður þessu viðvíkjandi. Ég segi já og þó fyrr hefði verið.