Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:37:43 (3710)

1999-12-21 18:37:43# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÁRJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:37]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Hér eru stjórnvöld að þröngva þessu umdeilda máli í gegnum þingið eftir að sýnt hefur verið fram á að rannsóknum er áfátt, verið er að brjóta alþjóðasamninga, óvissa er um lögmæti og stjórnvöld hafa ekki hrakið rök og staðhæfingar óháðra hagfræðinga um að tap verði á virkjuninni.

Hér er verið að staðfesta að framin verði óbætanleg náttúruspjöll á einstöku landsvæði á hálendi okkar. Samþykkt þessa mun hafa meiri og alvarlegri afleiðingar en nokkurn órar fyrir. Ég segi nei.