Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Frv. sem við ræðum hér, um Byggðastofnun og færslu Byggðastofnunar undir iðnrn., er mál sem ég tjáði mig um við 1. umr. og lýsti mig andvígan. Ég er enn þeirrar skoðunar að hér sé ekki stigið gæfuspor.
Það er rétt sem komið hefur fram í máli hv. þm. sem hér hafa tekið til máls, þó sérstaklega síðasta ræðumanns, hv. þm. Árna Steinars Jóhannssonar, að byggðamálin eru í mjög alvarlegri stöðu í heild sinni. Það eru ævinlega að koma nýjar tölur um fólksflutningar af landsbyggðinni. Úr Vestfjarðakjördæmi er áætlað að hátt í 300 manns muni flytja á þessu ári.
Þessi staða er að stórum hluta komin til vegna þess að atvinnuöryggi í hinum dreifðu byggðum landsins, sjávarbyggðunum, er fyrir borð borið. Fólk finnur ekki til öryggis í heimabyggð sinni miðað við atvinnustefnu stjórnvalda, sérstaklega varðandi stjórn fiskveiðimálanna. Fólk kýs oft og tíðum að bregða búi og komast í burtu ef það á kost á því. Jafnvel þó ekki séu endilega yfirvofandi erfiðleikar bregða menn á það ráð að flytja úr byggðinni vegna þess að það treystir ekki á framtíð landsbyggðarinnar. Þetta er auðvitað afleiðing þess að hægt er að færa atvinnuréttinn, fiskveiðiréttindin, þ.e. kvótann burt hvenær sem er, hvert sem er og enginn getur sagt neitt við því. Það var gert með lögum nr. 38/1990 sem leyfa frjálst framsal innan kvótakerfisins. Þetta hefur nú verið viðurkennt m.a. í skýrslu Byggðastofnunar um byggðir á Íslandi. Hins vegar eru tillögur stofnunarinnar um viðbrögð ekki mjög markvissar að mínu mati. Ég held að það verði ekki tekið á stórum þáttum þessa máls öðruvísi en að endurskoða lögin um stjórn fiskveiða, afhenda fólki réttinn aftur og afnema það frjálsræði sem útgerðarmenn hafa nú til að gera nánast það sem þeim dettur í hug við aflakvótann og atvinnuréttinn í leiðinni.
Fram hafa komið tvær brtt. við þetta frv. um Byggðastofnun. Ég tel skárri lausn sem þar er lögð til að Byggðastofnun færist undir félmrn. fremur en hún færist undir iðnrn. Ég held að byggðamálin eigi meira sameiginlegt með málaflokkum félmrn., í sambandi við sveitarstjórnarmál og fleiri mál heldur, en málum undir stjórn iðnrn.
Önnur brtt. er um að kosið skuli í stjórn Byggðastofnunar af Alþingi og ég styð hana líka. Ég tel þær tvær brtt. sem hér eru til bóta þó að ég telji frv. í heild sinni ekki til bóta. Það verður hins vegar sjálfsagt keyrt í gegn af meiri hluta stjórnarflokkanna eins og aðrar tillögur ríkisstjórnarinnar. Hér er auðvitað um kaup kaups að ræða þar sem Sjálfstfl. fær Seðlabankann til sín en Framsfl. byggðamálin. Ég hefði talið að margt nauðsynlegra en það sem nú er lagt upp með sem verður byggðamálunum ekki til framdráttar.