Vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 20:07:37 (3742)

1999-12-21 20:07:37# 125. lþ. 51.31 fundur 228. mál: #A vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum# (gjald fyrir veiðikort) frv. 131/1999, ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[20:07]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil láta það koma fram að við hv. þm. Kristján Pálsson áttum tal saman fyrir þennan afgreiðslufund sem hann vitnar til. Honum mátti fullljóst vera að það var ekki ætlun mín sem formanns að afgreiða málið á þessum fundi. Auðvelt hefði verið að halda aðra fundi til afgreiðslu málsins.