Ferill 452. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1083  —  452. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um skipti á upplýsingum um tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustu.

Frá utanríkismálanefnd.



     1.      Við 1. gr. Í stað orðanna „upplýsingaskipti á tæknilegum reglum um vörur og fjarþjónustu sem haft geta“ í 1. mgr. komi: skipti á upplýsingum um tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustu sem geta haft.
     2.      Við 2. gr. 5. tölul. orðist svo: Vörur: Allar framleiðsluafurðir iðnaðar, allar landbúðnaðar- og fiskafurðir.
     3.      Við 6. gr. Í stað orðanna „Þetta gildir“ í fyrri málslið 2. mgr. komi: Ákvæði 1. mgr. gildir.