Ferill 503. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1125  —  503. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þorstein Ólafsson og Ásu Gunnsteinsdóttur frá Umhyggju.
    Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði með takmörkunum og eftir reglum sem tryggingaráð setur og ráðherra staðfestir að greiða óhjákvæmilegan dvalarkostnað annars foreldris við sjúkrahúsinnlögn barns yngra en 18 ára fjarri heimili. Ef um er að ræða erfiða meðferð við lífshættulegum sjúkdómi er heimilt að slík greiðsla nái til beggja foreldra barns undir 18 ára aldri.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Ásta Möller og Þuríður Backman voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. maí 2000.



Jónína Bjartmarz,


form., frsm.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.


Katrín Fjeldsted.



Bryndís Hlöðversdóttir.


Ásta R. Jóhannesdóttir.


Tómas Ingi Olrich.



Jón Kristjánsson.