Ferill 586. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1127  —  586. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu Rómarsamþykktar um Alþjóðlega sakamáladómstólinn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hjálmar W. Hannesson skrifstofustjóra frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á Rómarsamþykkt um Alþjóðlega sakamáladómstólinn sem gerð var 17. júlí 1998.
    Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn, með aðsetur í Haag, mun hafa það hlutverk að dæma í málum einstaklinga sem grunaðir eru um alvarlegustu glæpi gegn mannkyninu, þ.e. hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði. Unnið hefur verið að stofnun dómstólsins allt frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar og verður stofnun hans að teljast mikilvægt framlag til mannréttindaverndar og friðar í heiminum.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    
Orðin „í Róm“ í tillögugreininni falli brott.

Alþingi, 3. maí 2000.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Jón Kristjánsson.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.



Árni R. Árnason.


Jónína Bjartmarz.


Steingrímur J. Sigfússon.



Sighvatur Björgvinsson.


Jóhann Ársælsson.