Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1165  —  559. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um meðferð opinberra mála og almennum hegningarlögum (nálgunarbann).

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Bogason og Björgu Thorarensen frá dómsmálaráðuneyti og Rúnu Jónsdóttur frá Stígamótum. Umsagnir um málið bárust frá Lögmannafélagi Íslands, Stígamótum, dómstólaráði, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Landssambandi lögreglumanna og ríkissaksóknara.
    Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði sérstakt úrræði til að vernda þá sem hafa orðið fyrir ofsóknum og ógnunum með því að leggja bann við að sá sem ofsækir eða ógnar komi á tiltekinn stað eða svæði, veiti eftirför, heimsæki eða setji sig með einhverju móti í samband við þann sem bannið verndar.
    Nefndin ræddi nokkuð þá málsmeðferð sem lögð er til í frumvarpinu. Lagt er til að lögregla geri kröfu til dómara um nálgunarbann og í framhaldi af því ákveði dómari þinghald til að taka kröfuna fyrir og gefi út kvaðningu á hendur þeim sem krafan beinist að. Að mati nefndarinnar er mikilvægt að þetta verði virkt úrræði þannig að það veiti þá vernd sem að er stefnt og að málsmeðferð gangi hratt fyrir sig hjá lögreglu og dómstólum en þó þannig að hagsmuna þess sem sæta á banninu verði ætíð gætt. Við umfjöllun málsins var rætt hvort ástæða væri til að veita þeim sem óskað hefur eftir því við lögreglu að úrræðinu verði beitt, en fær synjun, sjálfstæða heimild til að óska úrskurðar dómara um það. Niðurstaða nefndarinnar er að heppilegt sé að þessi mál séu í umsjá lögreglu. Telur nefndin að til þess að úrræðið veiti nægilega vernd geti komið til greina að lögregla geri kröfu um nálgunarbann þó að hún telji að um vafatilvik sé að ræða í þeim tilgangi að fá úrskurð dómara um hvort rétt sé að beita banninu. Þá bendir nefndin á að synjun lögreglu um að krefjast nálgunarbanns er kæranleg til dómsmálaráðuneytis. Nefndin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að lögreglumenn séu vel upplýstir um þetta úrræði og beinir hún því til dómsmálaráðherra að sjá til þess að fjallað verði um það í tengslum við menntun og endurmenntun lögreglumanna eða að fram fari fræðsla um það með öðrum hætti.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Jón Bjarnason sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu.
    Ásta Möller, Sverrir Hermannsson og Lúðvík Bergvinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. maí 2000.



Þorgerður K. Gunnarsdóttir,


form., frsm.


Jónína Bjartmarz.


Katrín Fjeldsted.



Ólafur Örn Haraldsson.


Guðrún Ögmundsdóttir.


Hjálmar Jónsson.