Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1189  —  190. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um stofnun nýbúamiðstöðvar á Vestfjörðum.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og telur mikilvægt að stofnun nýbúamiðstöðvar á Vestfjörðum verði hraðað, en upplýsingar liggja fyrir um að undirbúningur að stofnun slíkrar miðstöðvar sé þegar hafinn í félagsmálaráðuneyti.
    Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar.

Alþingi, 8. maí 2000.



Arnbjörg Sveinsdóttir,


form., frsm.


Pétur H. Blöndal.


Kristján L. Möller.



Ólafur Örn Haraldsson.


Drífa Hjartardóttir.


Guðrún Ögmundsdóttir.



Kristján Pálsson.


Steingrímur J. Sigfússon.


Jónína Bjartmarz.