Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1199 — 557. mál.
Breytingartillögur
við frv. til. l. um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttir og Þórunni Sveinbjarnardóttur.
1. Við 2. gr.
a. Í stað orðanna „nema hvað sjávarútvegsráðherra fer með yfirstjórn mála er varða nytjastofna sjávar“ í 1. mgr. komi: Í málum sem snerta nytjastofna sjávar skal samþykki sjávarútvegsráðherra liggja fyrir áður en ákvarðanir eru teknar.
b. Í stað orðanna „hlutaðeigandi stjórnvalds“ í 2. mgr. komi: umhverfisráðherra.
2. Við 4. gr. Í stað orðanna „setja umhverfisráðherra og sjávarútvegsráðherra“ í 1. mgr. komi: setur umhverfisráðherra.
3. Við 5. gr.
a. Í stað orðanna „hlutaðeigandi stjórnvaldi upplýsingar sem það“ í 1. mgr. komi: umhverfisráðherra upplýsingar sem hann.
b. Í stað orðanna „Heimilt er hlutaðeigandi ráðherra“ í 2. mgr. komi: Umhverfisráðherra er heimilt.