Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1279  —  524. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73 18. maí 1990.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur og Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Við 1. gr. Við bætist ný málsgrein sem verði 1. mgr., svohljóðandi:
                  2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:
                  Hugtakið auðlind samkvæmt lögum þessum tekur til allra ólífrænna og lífrænna auðlinda hafsbotnsins.
     2.      Við 3. gr. Fyrri málsliður efnismálsgreinarinnar orðist svo: Leyfi skv. 1. mgr. skal einungis veitt að undangengnu útboði í samræmi við ákvæði laga um framkvæmd útboða.