Framhaldsfundir Alþingis

Mánudaginn 15. janúar 2001, kl. 13:34:55 (3543)

2001-01-15 13:34:55# 126. lþ. 55.96 fundur 244#B framhaldsfundir Alþingis#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 126. lþ.

[13:34]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar alþingismanna og starfsmanna þingsins.

Ég vil nota þetta tækifæri, nú á fyrsta fundi Alþingis á þessu ári, til að óska alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs. Jafnframt sendi ég landsmönnum öllum mínar bestu nýársóskir. Ég vænti þess að störf okkar á síðari hluta þessa þings verði þjóðinni til farsældar.