Guðjón A. Kristjánsson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Hér er lagt fram frv. sem er ætlað að breyta dómsniðurstöðu frá Hæstarétti. Orð Hæstaréttar eru skýr, þau eru þannig:
,,Í umræddum dómi Hæstaréttar var viðurkennt að Tryggingastofnun ríkisins hefði verið óheimilt frá 1. janúar 1994 á grundvelli 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 485/1995 að skerða tekjutryggingu örorkulífeyrisþega í hjúskap með því að telja helming samanlagðra tekna beggja hjóna til tekna lífeyrisþegans í því tilviki, er maki hans er ekki lífeyrisþegi. Einnig var viðurkennt að óheimilt hefði verið að skerða tekjutryggingu örorkulífeyrisþega í hjúskap frá 1. janúar 1999 skv. 5. mgr. 17. gr. laga nr. 117/1993, sbr. 1. gr. laga nr. 149/1998.``
Þessi orð eru ákaflega skýr. En með þeirri málsmeðferð sem hér er lagt upp með er Alþingi ætlað að breyta þessari niðurstöðu, það er alveg ljóst. Hér á að fara að vilja ríkisstjórnarinnar og keyra yfir það sem dómstólar landsins hafa gert og byggt er á stjórnarskránni.
Frjálslyndi flokkurinn mun ekki undir neinum kringumstæðum leggja þessu máli lið á nokkurn hátt.