Forseti (Halldór Blöndal):
Það er rétt hjá hv. þm. að ég var ekki viðbúinn því síðustu daga fyrir helgi að kalla stjórnarandstöðuna saman til fundar. Ég gerði það á hinn bóginn í morgun og áður á fundi með forsn. Þar kom fram að ég var við því búinn að svo kynni að fara að ekki næðist samstaða um að taka almannatryggingamálið á dagskrá í dag. Ég tilkynnti það bæði forsn. og formönnum þingflokka og ég hygg að það sé --- það er a.m.k. nýtt fyrir mér --- kannski vegna þess að ég er ekki jafnkunnugur og hv. þm. í sölum Alþingis, ef þingmenn vilja ekki fá mál sín á dagskrá.