Ásta R. Jóhannesdóttir (um fundarstjórn):
Herra forseti. Hæstv. forseti talaði um venjur. Á mánudögum á þessum tíma eru venjulega þingflokksfundir í þinginu þannig að það er ekki farið að venjum hér í dag.
Annars verð ég að lýsa furðu minni á ósvífni og útúrsnúningum hvers stjórnarþingmannsins á fætur öðrum í afstöðu þeirra til öryrkjamálsins. Það er hægt að greiða óskertar bætur til þeirra sem bætur hafa verið skertar hjá vegna tekna maka. Því hefur verið lýst yfir af háskólaprófessornum Eiríki Tómassyni og það hefur komið fram hér í umræðunni. Það er hægt að gera það. Stjórnarliðar vilja hins vegar koma í gegn ólögum sem ekki standast stjórnarskrána, skerðingarlögum sem gera þeim kleift að greiða öryrkjum í sambúð skertar bætur, ekki þær bætur sem Hæstiréttur telur að þeir eigi rétt á heldur skertar bætur, miðað við frv. sem kemur hér á borð okkar þingmanna í dag og neitað var að afhenda heilbr.- og tryggingarnefndarmönnum fyrir helgi þó búið væri að boða okkur á fund í dag til að ræða málið. Það er með ólíkindum hvernig menn halda hér á málum.
Ætlunin er að lögfesta áfram og aftur mannréttindabrot eins og gert var árið 1998. Það á enn að lögfesta skerðingu tekjutryggingar vegna tekna maka. Hæstiréttur hefur lýst því yfir að það sé brot á stjórnarskránni, mannréttindabrot ...
(Forseti (HBl): Ég vil benda hv. þm. á að hún hefur ekki enn komið að fundarstjórn forseta. Nú er ekki á dagskrá frv. um almannatryggingar. Ef þingmaðurinn hefur annað til málanna að leggja væri gott að fá að heyra það.)
Herra forseti. Ég hóf mál mitt á því að benda herra forseta á að hann vísaði til venjulegra fundarstarfa á mánudögum. Samkvæmt venju í þinginu eru þá haldnir þingflokksfundir.
Aftur á móti vil ég minnast hér á þingmál sem ég er 1. flm. að og birtist á dagskrá þingsins fimm mínútum eftir að þingfundur hófst hér áðan. Ég tel harla óvenjulegt að þingmaður sjái mál sitt á dagskrá nokkru eftir að þingfundur er hafinn, enda hófst þingfundur án þess að nokkur dagskrá væri á borðum þingmanna. Auk þess er það venjan að þingmenn sjái hvað er á dagskrá dagsins að morgni dags, þannig að menn geti undirbúið sig fyrir umræðuna. Ég veit ekki til þess að hv. þm. í allshn. hafi t.d. vitað að hér ætti að ræða þingmál dómsmrh.