Meðferð opinberra mála

Mánudaginn 15. janúar 2001, kl. 14:47:01 (3575)

2001-01-15 14:47:01# 126. lþ. 57.1 fundur 367. mál: #A meðferð opinberra mála# (opinber rannsókn) frv., Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 126. lþ.

[14:47]

Forseti (Halldór Blöndal):

Forseti vil ítreka það sem hann áður sagði, að hann átti fund með formönnum þingflokka í morgun. Þar gerði hann þeim grein fyrir því að stjórnarfrv. sem biðu 1. umr. yrðu tekin til dagskrár á þessum fundi og ekki var gerð athugasemd við það.

Gert verður tíu mínútna hlé á fundinum til þess að verða við ósk hv. 13. þm. Reykv., Ögmundar Jónassonar, um að forseti eigi fund með formönnum þingflokka.