Einbreiðar brýr

Þriðjudaginn 16. janúar 2001, kl. 14:15:32 (3614)

2001-01-16 14:15:32# 126. lþ. 58.3 fundur 374. mál: #A einbreiðar brýr# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur, 126. lþ.

[14:15]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Vegna þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram um mikilvægt mál vil ég undirstrika að við höfum tekist á við að fækka einbreiðum brúm. Ég minni á vegáætlun sem var samþykkt hér án mótatkvæða. Í henni er gert ráð fyrir því að fækka þessum hættulegu köflum á þjóðvegakerfi okkar. Ég vil bara minna á að Alþingi tók mjög myndarlega á þessu og fyrir það er ég þakklátur sem ráðherra samgöngumála.