Framkvæmdir tengdar Reykjanesbraut

Þriðjudaginn 16. janúar 2001, kl. 14:44:09 (3625)

2001-01-16 14:44:09# 126. lþ. 58.5 fundur 373. mál: #A framkvæmdir tengdar Reykjanesbraut# fsp. (til munnl.) frá samgrh., ÁRÁ
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur, 126. lþ.

[14:44]

Árni R. Árnason:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir þau sjónarmið sem hún lét uppi um áhyggjur Suðurnesjamanna af öryggi vegfarenda á Reykjanesbrautinni. Ég tel það meginefni þessa máls og þær umræður voru mest áberandi á borgarafundi í Stapa í sl. viku, þ.e. um öryggi vegfarenda á brautinni. Það skiptir mestu að bæta úr í þessu efni og það sem hæstv. samgrh. hefur sagt um það, bæði á þeim fundi og hér í dag segir mér að hann hefur einbeittan vilja til að flýta þeim framkvæmdum.