Almannatryggingar

Miðvikudaginn 17. janúar 2001, kl. 15:03:30 (3726)

2001-01-17 15:03:30# 126. lþ. 60.7 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 126. lþ.

[15:03]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég get ekki fellt neina palladóma og hef ekki gert það um þá lögfræðinga sem stjórnarandstaðan hefur ráðgast við vegna þess að stjórnarandstaðan hefur ekki nefnt einn einasta lögfræðing sem hún hefur ráðgast við.