Ásta Möller (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég tók eftir því í andsvörum hv. þm. Ögmundar Jónassonar hér fyrr í kvöld að hann talaði um að við beittum ýtrustu túlkun dómsins --- ýtrustu túlkun dómsins, ég tók þetta beint niður eftir honum. Með þessum orðum viðurkennir hv. þm. að dómurinn feli ekki ótvírætt í sér að það hafi verið óheimilt að tekjutengja. (ÖJ: Ég tel engan vafa leika á því en það er deilt um niðurstöðuna.) Hef ég orðið?
(Forseti (ÁSJ): Ég bið hv. þm. að virða ræðutíma.)
Hann talaði hér áðan um að beita ýtrustu túlkun dómsins. Það er akkúrat það sem stjórnarandstaðan er að gera. Hún er að reyna að beita dómnum pólitískt sér í hag. Það er alveg ljóst að dómurinn felur ekki í sér að óheimilt sé að tekjutengja örorkulífeyri við tekjur maka.
(ÖJ: Er þetta pólitík Sjálfstfl. að hafa þessa peninga af fólkinu?)