Almannatryggingar

Miðvikudaginn 17. janúar 2001, kl. 19:24:31 (3778)

2001-01-17 19:24:31# 126. lþ. 60.7 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, ÁMöl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 126. lþ.

[19:24]

Ásta Möller (andsvar):

Það sem ég sagði, virðulegi forseti, var að það særði réttlætiskennd mína þegar almannafé sem notað er í almannaþágu til styrktar þeim sem minna mega sín fer til þeirra sem meira hafa, í því samhengi sem ég er að tala um hér. Við erum að ræða um það í þessu samhengi hér.

Það má hver og einn lýsa sinni réttlætiskennd, ég lýsti minni í þessu máli.