Tómas Ingi Olrich (andsvar):
Herra forseti. Hæstiréttur kemst eingöngu að því að lágmarkið sem lögin taka til stangist á við það lágmark sem skilgreint er í stjórnarskránni. Ég vil hins vegar nota tækifærið til að benda á að í viðbrögðum stjórnarandstöðunnar ríkir mikil þögn um eitt atriði sem ég lagði mikla áherslu á í máli mínu, en það er að ef hv. þm. Lúðvík Bergvinsson hefur rétt fyrir sér að 5. mgr. 17. gr. er fallin á brott, þá eru engin heimildarákvæði til að greiða þetta. Enginn þeirra sem hér hefur kvatt sér máls sem hefur viljað fara inn á það, en það er að sjálfsögðu grundvallaratriði, vegna þess að ef þetta ákvæði er fallið brott, þá eru engar heimildir til að greiða þetta. Og enginn af þeim sem hér hafa kvatt sér hljóðs hefur treyst sér til að koma inn á þennan þátt málsins.