Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst leitt að heyra hæstv. ráðherra --- ég vil ekki segja gera lítið úr hinum nýja mannréttindakafla stjórnarskrárinnar frá 1995 heldur frekar --- þynna út gildi þess að þessi ákvæði voru tekin upp í stjórnarskrána. Hvort sem við teljum að efnisbreytingarnar eða breytingar á réttarreglum hafi verið meiri eða minni en engar, þá hlýtur það auðvitað að styrkja stöðu þessa að koma upp í stjórnarskrána eins og þar var gert. Ég held að engum hafi dottið annað í hug en að þessi réttindi öðluðust annan sess með því að koma inn í stjórnarskrá.
Hvað varðar það sem hæstv. ráðherra sagði um breytingarnar 1993 og að þá hefði verið um handvömm að ræða en ekki ásetning þá breytir það ekki hinu að fyrirkomulagið var og hafði lengi verið umdeilt. Fjölmargir öryrkjar höfðu barist gegn þessari tengingu. Þegar glöggir menn uppgötva svo að hún eigi núna að framkvæmast án lagastoðar þá hefja þeir eðlilega baráttuna tvíefldir á þeim grunni. Ég hygg að það hafi verið Bragi Halldórsson og Sjálfsbjörg á Akureyri sem hófu þessa baráttu 1996, en höfðu þá lengi áður staðið gegn þessari tengingu.