Almannatryggingar

Fimmtudaginn 18. janúar 2001, kl. 14:41:25 (3917)

2001-01-18 14:41:25# 126. lþ. 61.1 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 126. lþ.

[14:41]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. 51 þús. kr. sem talað er um samanstanda af tvennu, grunnlífeyri og tekjutryggingu. Tekjutryggingin er núna 32.566 kr. Samkvæmt frv. ríkisstjórnarinnar verður hún 25 þús. kr. Ég spyr hv. þm.: Hvort er þetta hækkun eða lækkun?