Almannatryggingar

Fimmtudaginn 18. janúar 2001, kl. 20:20:28 (3991)

2001-01-18 20:20:28# 126. lþ. 61.1 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 126. lþ.

[20:20]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Þingmenn Frjálslynda flokksins munu ekki styðja þetta frv. og er þar staðið við þá yfirlýsingu sem við gáfum í upphafi málsmeðferðarinnar að við munum með engum hætti ljá þessum málum lið. Stjórnarliðar hafa ákveðið að keyra þetta frv. í gegn og þeim mun örugglega takast það með sínum meiri hluta.