Almannatryggingar

Mánudaginn 22. janúar 2001, kl. 10:40:39 (3995)

2001-01-22 10:40:39# 126. lþ. 63.1 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, Frsm. meiri hluta JBjart (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 126. lþ.

[10:40]

Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz) (andsvar):

Herra forseti. Svo sem fram kemur í nefndaráliti meiri hlutans var fjöldi manna kvaddur á fund nefndarinnar til þess að fjalla um þessi mál. Það sem við höfum hér vísað í eru fyrst og fremst álit lögfræðinga sem lúta að fyrningu. Ég minnist þess ekki að á fundi hv. heilbr.- og trn. hafi mikið verið rætt um siðferði.