Frsm. minni hluta heilbr.- og trn. (Bryndís Hlöðversdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég verð að lýsa yfir vonbrigðum mínum með að enn og aftur skuli hæstv. ráðherra koma hér og í stað þess að beita fyrir sig málefnalegum rökum koma með útúrsnúninga á því sem sagt hefur verið. Margoft hefur verið ítrekað í þessum sal, herra forseti, að þessi grein stjórnarskrárinnar og jafnframt það sem segir í áliti minni hlutans þýði ekki að ekki megi jafna kjör landsmanna á einn eða annan hátt. Það hefur margoft komið fram. Það skal gera eftir tilteknum málaefnalegum fyrir fram ákveðnum reglum. Ein af þeim reglum er sú að samkvæmt þessum dómi Hæstaréttar þá má ekki skerða grundvallartekjutryggingu með tekjum maka.
Þessi málflutningur, herra forseti, er framhald á þeim útúrsnúningi sem einkennt hefur málflutning stjórnarliðanna í öllu þessu máli.