Frsm. minni hluta heilbr.- og trn. (Bryndís Hlöðversdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég lít ekki svo á að það sé hlutverk mitt að kenna hæstv. utanrrh. grundvallaratriði stjórnskipunarréttar og hvernig eigi að skilja ákvæði stjórnarskrárinnar. Með sömu rökum getur hæstv. utanrrh. snúið út úr orðalagi stjórnarskrárinnar nákvæmlega eins og það kemur fram.
Herra forseti. Ég bara geri þá kröfu að menn átti sig t.d. á muninum á grundvallarmannréttindum eða heimildum sem felast í skattalögum til tekjujöfnunar að öðru leyti.
Ég vil líka minna á það, herra forseti, af því að svo virðist sem hæstv. ráðherra hafi ekki lesið álitið í heild, að hér er verið að vísa í nál. minni hluta frá árinu 1998 þar sem fjallað var um tiltekið skerðingarákvæði og væntanlega á þá texti þess sem vísað er í um það skerðingarákvæði en ekki bara alla skapaða hluti, herra forseti. Það verður að lesa texta í samhengi við það sem hann er um.