Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz) (andsvar):
Herra forseti. Það er fljótséð á minnihlutaálitinu að þar er mörgum orðum farið um lögfræðina í málinu og það er akkúrat það sem þetta mál snýst um. En það sem ég vildi vekja athygli á er að það var í fyrsta skipti í sjónvarpsviðtali í gær við hv. þm. að hún viðurkennir að það séu fleiri en ein lögskýringarleið tæk á þessu máli og ég vil fagna því.
En mig langar að koma aðeins inn á eitt atriði sem þingmaðurinn vék að og það varðar íþyngjandi reglu með afturvirkum hætti. Í lögfræðinni er litið þannig á að óheimilt sé að setja íþyngjandi reglur með afturvirkum hætti og sérstaklega litið til skatta og gjalda. En í því tilviki sem hér um ræðir gilti tiltekin efnisleg skerðingarregla frá 1. jan. 1999 sem Hæstiréttur taldi ganga of langt. Frv. gerir ráð fyrir að í stað fyrri reglu komi önnur efnisleg regla fyrir sama tímabil sem gengur mun skemur. Fyrir örorkulífeyrisþega í hjúskap virkar reglan því ívilnandi en ekki íþyngjandi svo ég haldi á lofti öðrum skilningi en hv. þm. hafði bara um þetta eina atriði.