Almannatryggingar

Mánudaginn 22. janúar 2001, kl. 14:35:25 (4034)

2001-01-22 14:35:25# 126. lþ. 63.1 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, ÁMöl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 126. lþ.

[14:35]

Ásta Möller (andsvar):

Það er alveg ljóst að, virðulegur forseti, að við náum ekki saman í þessari umræðu. Það liggur alveg fyrir. Fólk skilur þetta á sinn veg og við getum hártogast þetta bak og fyrir. Við náum ekki sameiginlegri niðurstöðu enda er það kannski ekki það sem við ætlum okkur að gera.

Ég hef ekki meira um þetta að segja að sinni. Ég tel mig hafa svarað því sem ég hef verið spurð um. Hér eru hins vegar stöðugt endurteknar sömu spurningarnar sem ég tel mig hafa svarað og stjórnarliðarnir einnig í þessu máli.