Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Mér kemur afskaplega mikið á óvart ef hv. þm. telur að prófessorarnir Sigurður Líndal og Eiríkur Tómasson og lektor við lagadeild Íslands, Skúli Magnússon, viti lítið sem ekkert um mannréttindi. Ég er alveg undrandi á að ekki skuli vera sérstaklega vitnað í þá lögfræðinga sem hv. þm. nefnir hér í minnihlutaálitinu. Þeir eru ekki nefndir á nafn í ræðu þeirri sem haldin var hér fyrir hönd minni hlutans.
Þetta kemur því sannarlega á óvart og væri fróðlegt að vita hvað þessir lögfræðingar hafa sagt á sviði mannréttinda og hvort hinir lögfræðingarnir, prófessorarnir, hafi ekkert um það sagt því að hv. þm. sagði að allir þeir sem væru á sviði mannréttinda hefðu verið sammála um þetta.