Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. hefur lýst hér yfir í nokkuð löngu máli bjargfastri sannfæringu sinni um þýðingu þessa dóms. Nú er það svo að menn hafa sína bjargföstu sannfæringu um að eitthvað sé á einn veg. Þá hljóta að vakna hjá mér spurningar. Þær eru þessar:
Ef það er bjargföst sannfæring hans að þessi dómur sé eins og hann lýsir, að það sé bannað að tekjutengja við tekjur maka, það sé brot á stjórnarskrá og mannréttindum og ég veit ekki hvað og hvað, hvað í greiningu Sigurðar Líndal prófessors á þessum dómi er rangt? Hvað er rangt í greiningu Eiríks Tómassonar prófessors á þessum dómi? Hvað er rangt í greiningu Skúla Magnússonar lektors á þessum dómi?
Ég hlýt að spyrja að þessu til að reyna að átta mig á því um hvað er talað og hvernig stendur á því að við liggjum undir þessum ásökunum.