Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég tel að ekki sé verið að taka áhættu. Ég man mjög vel eftir að þegar Alþingi var kallað saman á sínum tíma vegna svokallaðs Valdimarsdóms. Þá var því haldið fram af stjórnarandstöðunni á Alþingi að með þeim lögum sem sett voru væri um áframhaldandi stjórnarskrárbrot að ræða. Við töldum svo ekki vera.
Hæstiréttur felldi svo nýjan dóm sem staðfesti að þau lög sem sett voru af því tilefni væru í samræmi við stjórnarskrána. (Gripið fram í: Undir nokkrum þrýstingi.) Undir nokkrum þrýstingi? Er við hæfi að halda því fram að sjálfstæður Hæstiréttur landsins kveði upp dóma undir þrýstingi? Mér finnst alveg furðulegt að hlusta á svona frammíköll á Alþingi.