Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef ekki dregið úr því að ýmis félagasamtök í landinu hafa fagnað þessari niðurstöðu enda er verið að bregðast við henni á Alþingi. Hins vegar er út í hött þegar hv. þm. heldur því fram að hér sé verið að leggja fram skerðingarfrumvarp. Það er verið að hækka lágmarkið úr rúmum 18 þús. kr. í 43 þús. kr. og það er kölluð skerðing.
Ég hef aldrei vitað svona málflutning fyrr. Þegar skerðingin er reiknuð út er gengið út frá því að það sé alveg ljóst að niðurstaða Hæstaréttar sé sú að hámarkið eigi að vera 51 þús. kr. Það er ekki forsenda sem hv. þm. getur gefið sér enda hafa ýmsir aðrir þingmenn sagt að hér sé um álitamál að ræða þó að hv. þm. Ögmundur Jónasson hafi ekki tekið sér þau orð í munn.