Árni Johnsen (andsvar):
Herra forseti. Sorglegt að hlusta á hvernig hv. þm. Jóhann Ársælsson er heillum horfinn frá þeirri hugsjón sem hann bar þó í brjósti þegar hann kom fyrst inn á Alþingi fyrir allmörgum árum. Þá var hann trúverðugur málsvari þeirra sem verja hag þeirra minnstu og það kom oft fram í máli hans en nú er það brjóstlag sem hv. þm. hafði þá fokið út í veður og vind.
Það kann að vera að þetta sé vegna þess að nú er hv. þm. kominn í annan flokk, náttúrulausan flokk, sem hefur engin verkefni að vinna að og grípur hálmstrá í hverju sem er til að koma sér á framfæri, náttúrulausan flokk sem nær ekki takti við nein markverð verkefni, á engar hugsjónir, engan verkefnalista og ekkert til að vinna eftir nema öldugjálfur og pus í kjölfar fréttaflutnings fjölmiðla sem vilja heldur selja fréttir en segja fréttir.
Það er líka sorglegt að hv. þm. hafi ekki meiri móð í hjarta sínu en svo að hann láti Hæstarétt leggja niður jafnaðarstefnuna með dómi þriggja dómara, leggja niður stefnu sem hefur löngum byggst á því að verja hag þeirra sem minnst mega sín og tryggja rétt þeirra til a.m.k. jafnræðis við aðra. Það er auðvitað spurning um fjármagn og ýmsa aðra hluti sem skipta miklu máli. En nú er svo komið fyrir þessum ágæta þingmanni og flokki hans, og það er nákvæmlega eins og kemur fram í málflutningi hv. þm. Jóhanns Ársælssonar, að það er eins og hv. stjórnarandstöðuþingmenn í salnum séu að keppast við að hafa ofan af hver fyrir öðrum eins og í einhverri dagvistun í þessari umræðu.