Fyrirvari um greiðslu lífeyrisþega

Mánudaginn 12. febrúar 2001, kl. 15:23:01 (4408)

2001-02-12 15:23:01# 126. lþ. 67.1 fundur 278#B Fyrirvari um greiðslu lífeyrisþega# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 126. lþ.

[15:23]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það sem farið hefur fram á milli aðila í þessu máli. Aðalatriðið er að verði málaferli út af þessu máli og fáist niðurstaða í því fyrir dómstólum þá mun það ekki aðeins gilda um þann einstakling sem þar á hlut að máli heldur alla einstaklinga sem hafa sambærilegar aðstæður. Það hlýtur að vera aðalatriði málsins.