Katrín Fjeldsted (andsvar):
Herra forseti. Ég er mjög hlynnt jafnræði meðal íþróttamanna. Ef um er að ræða að banna íþróttir þar sem heilinn er í hættu, þá held ég að hv. þm. Einar Már Sigurðarson hljóti að taka undir með mér að það sé ekki æskilegt ef heilinn í fólki er í hættu. En ef við erum að gera upp á milli íþróttagreina og segja að sumar séu hættulegri en aðrar þá vakti ég athygli á því að breska læknafélagið telur að þetta sé ein hættulegasta íþróttin. Ég hlýt að taka það sem skynsamlega niðurstöðu eftir einhverja yfirlegu en ekki bara tilviljanakennda fordóma breska læknafélagsins. Það er ekki svoleiðis. Menn komast að þessari niðurstöðu eftir ítarlega yfirferð yfir þetta mál og það byggir á því að það er heilinn sem skaðast. En hann skaðast ekki á æfingum, hann skaðast ekki við það að leyfa búnaðinn, hann skaðast ekki við það að menn kýli í púða inni í íþróttasölum. Hann skaðast við höfuðhögg í keppni, það er málið. (Gripið fram í: Þá leysum við þetta mál.) Þá leysum við þetta mál.