Lax- og silungsveiði

Þriðjudaginn 13. febrúar 2001, kl. 17:15:36 (4537)

2001-02-13 17:15:36# 126. lþ. 68.4 fundur 389. mál: #A lax- og silungsveiði# (rekstrarleyfi, gjaldtaka, fiskeldisnefnd o.fl) frv., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 126. lþ.

[17:15]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég hlýt að biðjast afsökunar úr því að ég hef misskilið hv. 9. þm. Reykn., Sigríði Jóhannesdóttur. Ég heyri að hv. þm. er sammála mér um að nauðsynlegt sé að fiskeldisstöðvar geti gengið kaupum og sölum og einnig að hv. þm. er sammála mér um að nauðsynlegt sé að stuðla að því að laxeldi í stórum stíl geti orðið við strendur landsins.