Lax- og silungsveiði

Þriðjudaginn 13. febrúar 2001, kl. 17:16:17 (4538)

2001-02-13 17:16:17# 126. lþ. 68.4 fundur 389. mál: #A lax- og silungsveiði# (rekstrarleyfi, gjaldtaka, fiskeldisnefnd o.fl) frv., SJóh (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 126. lþ.

[17:16]

Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. heldur áfram að gera mér upp skoðanir og segir að við séum sammála um ákveðna agnúa á þessu frv. Það er öðru nær. Ég fagnaði einmitt því sérstaka nýmæli í þessu frv. að framsal, leiga og veðsetning á rekstrarleyfi er óheimil. Ég hélt að það væri komið beint frá hjarta hæstv. forseta Alþingis sem ég veit ekki betur en styðji þá ríkisstjórn sem leggur fram þetta frv. með því nýmæli að framsal, leiga og veðsetning á slíku rekstrarleyfi er óheimil.