Lax- og silungsveiði

Þriðjudaginn 13. febrúar 2001, kl. 17:17:18 (4539)

2001-02-13 17:17:18# 126. lþ. 68.4 fundur 389. mál: #A lax- og silungsveiði# (rekstrarleyfi, gjaldtaka, fiskeldisnefnd o.fl) frv., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 126. lþ.

[17:17]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Síðara andsvar hv. þm. virðist benda til þess að ég hafi skilið hana rétt. Það má kannski segja að það sé jákvætt fyrir minn skilning. Mér þykir á hinn bóginn leiðinlegt að hv. þm. skuli ekki vilja láta laxeldisfyrirtæki lúta sömu grundvallarreglum og annar rekstur í landinu.