Kristján Pálsson:
Herra forseti. Ég var einn af þeim sem taldi rétt að hefja hvalveiðar sem allra fyrst og hef einnig lýst þeirri skoðun minni að við eigum að ganga í Alþjóðahvalveiðiráðið enda löngu ljóst að það er akkillesarhællinn í því að við getum hafið þessar veiðar strax. Sú skoðun var reyndar uppi fyrir löngu að við þyrftum að ganga úr þessu ráði en það var misskilningur og hann þurfum við að leiðrétta.
Ég trúi ekki öðru og finnst ástæðulaust að gera því skóna hér að ráðherra og ríkisstjórn séu ekki að gera allt í þessu máli til þess að hvalveiðar geti hafist. Ég trúi ekki öðru en að hæstv. sjútvrh., sem er úr Hafnarfirði, þar sem höfuðstöðvar hvalveiðiflotans eru, vinni að þessu máli af heilindum svo að málið nái fram að ganga og sem allra fyrst. Í mínum huga er ekki eftir neinu að bíða með að hefja hvalveiðar miðað við ástand hvalastofnanna eins og það er í dag.