Hvalveiðar

Miðvikudaginn 14. febrúar 2001, kl. 15:03:20 (4596)

2001-02-14 15:03:20# 126. lþ. 70.5 fundur 397. mál: #A hvalveiðar# fsp. (til munnl.) frá sjútvrh., GAK
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 126. lþ.

[15:03]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Enn á ný kemur hæstv. sjútvrh. og svarar að verið sé að kynna málin. Það sé verið að stefna að kynningu. Ég hlýt að spyrja: Hvar á að kynna málin? Hvenær á að kynna þau? Hvernig á kynna þau? Hver ætlar að kynna þau?

Svona þokusvar sem ber allt keim af því að menn séu að sigla í hringi með engan kompás og engin staðsetningartæki gengur ekki í þessu máli.