Halldór Blöndal:
Herra forseti. Eins og áður vil ég hvetja mjög til þess að hvalveiðar verði leyfðar hér við land. Þá er ég auðvitað að hugsa um raunverulegar hvalveiðar á langreyði, sandreyði, en ekki smáhvalaveiðar, og tel að nauðsynlegt sé að stefna óhikað og fast að því markmiði.
Ég er sammála því sem fram kom hjá hv. 2. þm. Reykn., Gunnari Birgissyni, að hægt er að gera hvort tveggja í senn, að vera með hvalaskoðun og hvalveiðar, án þess að þeir hagsmunir stangist á eða rekist á. Ég vil því eindregið hvetja hæstv. sjútvrh. til að halda vel á þessu máli.