Drífa Hjartardóttir:
Herra forseti. Kúariða og innflutningur matvæla hefur gefið okkur núna kærkomið tækifæri til að endurskoða allt eftirlit með innflutningi matvæla. Á Íslandi hafa sem betur fer ríkt strangar kröfur um innflutning kjöts til landsins, kröfur sem oft og tíðum hafa verið gagnrýndar. En þessar raddir eru ekki háværar í dag og nú þakka flestir fyrir hve vel hefur verið staðið að þessum málum. Með innflutningi matvæla fylgir mikil og vaxandi áhætta sem allt of margir hafa gert lítið úr. Landbúnaðurinn varðist af hörku gegn þessu og bar þau rök við sem voru réttmæt að hafa í hávegum heilbrigðissjónarmið og hollustuhætti. Nú getum við farið að eins og aðrar þjóðir, þ.e. að banna þennan innflutning og stöðva tilteknar framleiðsluaðferðir, á meðan þetta lítið er vitað um smitleiðir eins og raun ber vitni.
Að lokum vil ég nefna það að við eigum heldur ekki að taka óþarfa áhættu á innflutningi á norskum fósturvísum.