Orkukostnaður

Miðvikudaginn 21. febrúar 2001, kl. 14:03:16 (4907)

2001-02-21 14:03:16# 126. lþ. 75.5 fundur 202. mál: #A orkukostnaður# fsp. (til munnl.) frá iðnrh., iðnrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur, 126. lþ.

[14:03]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Ég held að við séum alveg sammála, ég og hv. fyrirspyrjandi, í sambandi við þetta mál. Reyndar hafði ég fyrir nokkuð mörgum vikum tekið þetta mál upp við embættismenn mína í ráðuneytinu. Við höfum fjallað um það og reynt að átta okkur á því hvernig við ættum að fara í málið en það er í þessu tilfelli eins og stundum áður að fyrirspurnir ýta frekar við manni en hitt, þannig að ég tel að þessi fyrirspurn sé okkur í hag og hafi orðið til þess að koma frekari hreyfingu á málið. Ég mun vinna að því áfram að reyna að leysa það, þannig að það verði að gagni fyrir þá aðila sem þarna um ræðir.