AHB fyrir VE

Mánudaginn 26. febrúar 2001, kl. 15:03:14 (4925)

2001-02-26 15:03:14# 126. lþ. 76.93 fundur 330#B AHB fyrir VE#, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 126. lþ.

[15:03]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 2. varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Adolf H. Berndsen framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni og forföllum 1. varaþingmanns.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Vilhjálmur Egilsson, 4. þm. Norðurl. v.``

Enn fremur liggur frammi svohljóðandi bréf:

,,Af sérstökum ástæðum get ég ekki tekið sæti sem varamaður á Alþingi á tímabilinu 27. febrúar til 5. mars árið 2001.

Sigríður Ingvarsdóttir,

1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v.``

Kjörbréf Adolfs H. Berndsens hefur verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.